Kaupskilmálar
1. Um okkur
Litabókin mín (hér eftir „við“) rekur vefinn litabokin.is þar sem viðskiptavinir geta breytt eigin ljósmyndum í persónulega litabók sem við prentum, bindum inn með gormi og sendum til þín.
Seljandi: Eggert Steinar Magnússon, einstaklingsrekstur
undir heitinu Litabókin mín
Kennitala: 051095-2279
Heimilisfang: Burknavellir 23, 221 Hafnarfjörður
Netfang: info@litabokin.is
2. Vörur og verð
Í boði er prentuð, gormuð litabók sem opnast flöt. Verðið ræðst af fjölda mynda í bókinni. Verð eru birt á síðunni í íslenskum krónum, eru endanleg og innihalda 24% virðisaukaskatt. Kvittun með sundurliðuðum virðisaukaskatti er send í tölvupósti um leið og greiðsla hefur borist. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði án fyrirvara, en það hefur ekki áhrif á pantanir sem þegar hafa verið staðfestar.
PDF-útgáfan. Í pöntunarferlinu getur þú valið að fá bókina einnig senda sem stafræna PDF-skrá gegn 690 kr. viðbótargjaldi. Þetta er valkvæð viðbót við prentuðu bókina en ekki sjálfstæð vara; sé hún ekki valin fæst einungis prentaða bókin.
Sending fer fram með Dropp. Í pöntunarferlinu velur þú annaðhvort afhendingarstað (Droppstað) eða heimsendingu þar sem hún er í boði, og sendingargjaldið ræðst af því vali samkvæmt gildandi verðskrá Dropp. Við leggjum ekkert ofan á það gjald. Gjaldið birtist áður en pöntunin er staðfest og kemur fram á kvittuninni. PDF-útgáfunni fylgir ekkert sendingargjald.
3. Greiðsla
Þú getur valið um tvær greiðsluleiðir þegar þú sendir pöntunina. Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK), innihalda 24% virðisaukaskatt og upphæðin sem birtist í pöntunarferlinu er sú sem er innheimt.
Greiðslukort. Við tökum við Visa og Mastercard, bæði debet- og kreditkortum. Greiðslan fer fram á öruggri greiðslusíðu myPOS Europe Ltd., sem er greiðsluþjónusta okkar; kortaupplýsingar þínar berast okkur aldrei og eru hvergi geymdar hjá okkur. Hvaða upplýsingar fara til myPOS og hvað við geymum um færsluna er lýst í 4. kafla persónuverndarstefnunnar. Greiðslan er staðfest samstundis og bókin fer strax í vinnslu. Á kortayfirlitinu þínu birtist færslan sem LITABOKIN.IS.
Millifærsla. Veljir þú millifærslu færðu reikningsnúmer, kennitölu og pöntunarnúmer, bæði á skjánum og í tölvupósti; pöntunarnúmerið skal nota sem skýringu millifærslunnar. Bókin er ekki unnin fyrr en greiðslan hefur borist. Berist greiðsla ekki innan 14 daga fellur pöntunin niður og myndunum þínum er eytt.
4. Afhending
Prentaða bókin er send til þín á 3–10 virkum dögum frá því að greiðsla berst. Veljir þú að sækja bókina til okkar (Burknavöllum 23, 221 Hafnarfirði) er hún tilbúin til afhendingar innan sama tíma; við sendum þér þá tölvupóst og semjum um afhendingartíma. Dragist afhending fram úr 10 virkum dögum, látum við þig vita og þú getur þá fallið frá kaupunum og fengið endurgreitt. Hafir þú keypt PDF-útgáfuna með, er hún send á netfangið þitt um leið og bókin hefur verið útbúin, að jafnaði nokkru á undan prentuðu bókinni. Hlekkurinn á PDF-skrána virkar í 90 daga.
5. Réttur til að falla frá kaupum
Litabókin er sérsniðin að þínum eigin myndum og telst því sérpöntuð vara sem framleidd er samkvæmt fyrirmælum þínum. Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 fellur slík vara utan hins almenna 14 daga réttar til að falla frá samningi. Sama gildir um PDF-útgáfuna, sem er stafrænt efni afhent með þínu samþykki áður en frestur til að falla frá samningi rennur út.
Þú getur hins vegar hætt við pöntun hvenær sem er áður en greiðsla þín berst okkur – þá er ekkert unnið og engin greiðsla innheimt. Eftir að greiðsla hefur borist hefst vinnslan og pöntunin verður bindandi.
Þetta hefur engin áhrif á rétt þinn ef varan reynist gölluð eða röng; sjá 6. grein.
6. Skil, gallar og endurgreiðslur
Berist þér gölluð eða skemmd vara, eða sé villa í vinnslu af okkar hálfu, hafðu samband við info@litabokin.is og við leysum úr því – með nýrri prentun eða endurgreiðslu eftir atvikum, þér að kostnaðarlausu. Við biðjum þig að láta okkur vita eins fljótt og þú getur, en það hefur engin áhrif á lögbundinn kvörtunarfrest þinn, sem er tvö ár frá afhendingu samkvæmt lögum um neytendakaup. Þessir skilmálar skerða ekki réttindi þín samkvæmt lögum.
Teikningarnar eru útbúnar sjálfvirkt úr myndunum þínum. Í undantekningartilvikum getur ein litasíða orðið ranglega teiknuð eða óskýr. Verði litasíða í bókinni þinni ónothæf eða greinilega röng, sendu okkur póst á info@litabokin.is og við teiknum hana upp á nýtt þér að kostnaðarlausu eða endurgreiðum þér hlutfallslega fyrir þær síður sem tókust ekki. Við mælum með að þú skoðir bókina þegar þú færð hana.
Hvernig endurgreiðsla fer fram. Endurgreitt er alltaf með sömu greiðsluleið og notuð var. Hafir þú greitt með korti fer endurgreiðslan aftur inn á sama kort; hafir þú millifært leggjum við upphæðina inn á reikninginn sem greitt var af. Við biðjum þig aldrei um kortanúmerið þitt til að endurgreiða.
Hvenær. Við afgreiðum endurgreiðslubeiðnir innan 14 daga frá því að við samþykkjum þær og að jafnaði mun fyrr. Eftir að við sendum endurgreiðsluna getur tekið 3–10 virka daga í viðbót fyrir bankann eða kortaútgefandann þinn að birta hana á reikningnum – sá tími er á þeirra hendi en ekki okkar.
Skil á vörunni. Þar sem bókin er sérsniðin að þínum myndum er hún engum öðrum nothæf, og því biðjum við þig að jafnaði ekki um að senda gallaða bók til baka – mynd af gallanum í tölvupósti dugar. Óskum við eftir að fá hana senda greiðum við sendingarkostnaðinn.
7. Ábyrgð á efni
Þú berð ábyrgð á að þú hafir heimild til að nota þær myndir sem þú hleður upp. Ekki er heimilt að hlaða upp ólöglegu eða móðgandi efni.
8. Persónuvernd
Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar.
9. Ef þú ert ósátt/ur
Hafðu fyrst samband við okkur á info@litabokin.is – við viljum leysa málið sjálf. Náum við ekki samkomulagi, getur þú vísað ágreiningi um kaup á vöru eða þjónustu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (sjá nánar á island.is). Neytendastofa hefur eftirlit með viðskiptaháttum á neytendamarkaði.
10. Lög og varnarþing
Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.