Búa til litabók

Fyrsta myndin ókeypis

Sjáðu barnið þitt verða að litabók

Veldu tegund og settu inn eina mynd. Hún er teiknuð á um mínútu – frítt.

JólaverkefnabókBarnið er hetjan í jólaþrautum
Frá 2.490 kr. Prentuð og send heim Tilbúin á 3–5 virkum dögum
Ókeypis Jólaleikir til að prenta heima Jólabingó, „Hver er ég?“, jólaspurningakeppni, ratleikur og fleiri leikir fyrir jólaboðið. Skráðu netfangið og við sendum þér leikina. Fá leikina senda

Svona kemur það út

Barnið verður hetjan í eigin ævintýri: hver síða er vaxlituð ævintýramynd og sama mynd sem litasíða. Farðu yfir mynd til að sjá litasíðuna.Ýttu á mynd til að sjá litasíðuna.

Barn sem geimfari á tunglinu Sama mynd sem litasíða
Geimfari
Barn sem prinsessa á vinalegum dreka Sama mynd sem litasíða
Prinsessa
Barn sem risaeðlusérfræðingur meðal risaeðla Sama mynd sem litasíða
Risaeðlu-expertinn
Barn í nornabúningi á hrekkjavökuhátíð Sama mynd sem litasíða
Hrekkjavaka

Níu ævintýri: prinsessa, prins, hrekkjavaka, hrollvekja fyrir 8–10 ára, geimfari, risaeðlu-expertinn, bílar, ofurhetja og íslenskt ævintýri. Ein mynd af barninu dugar.

Svona virkar það

1

Veldu bók og mynd

Þemabók eða venjuleg litabók. Fyrsta myndin er teiknuð ókeypis svo þú sérð útkomuna strax.

2

Við teiknum bókina

Hver síða er skoðuð af manneskju áður en bókin fer í prentun.

3

Fáðu bókina senda

Prentuð og gormuð, send á 3–5 virkum dögum á droppstöð eða heim.

Bók sem barnið notar – og þú getur treyst

Barn litar síðu í litabókinni með bláum lit; ljósmyndin er á síðunni við hliðina
Myndin fylgir alltaf með á opnunni, svo barnið þekkir hana strax.
Barn flettir litabókinni þar sem hún liggur flöt á borðinu
Gormabandið lætur bókina liggja alveg flata þegar litað er.
  • Sérð útkomuna fyrstFyrsta myndin er teiknuð ókeypis. Ekkert er greitt fyrr en þú vilt bókina.
  • Hver síða skoðuðManneskja fer yfir hverja síðu fyrir prentun. Sleppi eitthvað í gegn lögum við það frítt.
  • Myndirnar þínar eru öruggarAðeins notaðar í bókina og eytt þegar hún er farin. Aldrei í auglýsingar. Nánar

Verð

Sama verð fyrir þemabók og venjulega litabók (kynningarverð). Sending bætist við samkvæmt verðskrá Dropp – frá 890 kr. á droppstöð. Öll verð eru með virðisaukaskatti.

5 síður2.490 kr.aðeins þemabók
10 síður3.490 kr.
20 síður4.490 kr.
30 síður5.490 kr.
40 síður6.490 kr.

Allar bækur: forsíða með nafni barnsins, prentuð og gormuð. PDF-útgáfa með fyrir 690 kr. – hakað við í pöntuninni.

Prófaðu frítt Engin greiðsla fyrr en þú hefur séð hvernig myndin kemur út.

Áttu ekki myndirnar? Gefðu gjafakort

Fullkomið fyrir ömmur, afa og frænkur. Viðtakandinn velur sjálfur myndirnar og hvort bókin verði venjuleg litabók, þemabók eða jólaverkefnabók. Sending á droppstöð er innifalin og kortið kemur samstundis í tölvupósti – eða prentað í umslagi.

Kaupa gjafakort

Spurt og svarað

Hver er munurinn á þemabók og venjulegri litabók?

Í venjulegri litabók verða myndirnar þínar að litasíðum og ljósmyndin stendur við hliðina á hverri opnu. Í þemabók verður barnið hetjan í ævintýri – til dæmis geimfari, prinsessa eða risaeðlu-expert. Hver síða er vaxlituð ævintýramynd vinstra megin og sama mynd sem litasíða hægra megin, og saman mynda síðurnar eina sögu frá upphafi til enda.

Hve margar myndir þarf ég?

Í þemabók dugar ein mynd af barninu – úr henni teiknum við allar síðurnar. Þú mátt setja inn allt að þrjár myndir, og ef fleiri börn eiga að vera með segirðu hve mörg. Í venjulegri litabók verður hver mynd ein opna, allt að 40 myndir í bók.

Hvers konar myndir virka best?

Myndir þar sem fólkið sést vel í góðri birtu og andlitin eru ekki hulin. Í þemabók er barnið teiknað eftir andlitinu, svo því nær sem það er myndavélinni, því betur líkist ævintýramyndin barninu. Venjulegar símamyndir virka vel, líka eldri myndir og skannaðar ljósmyndir.

Fæ ég að sjá sýnishorn áður en ég borga?

Já. Settu inn eina mynd og hún er teiknuð ókeypis á um mínútu. Þú sérð hana fullteiknaða áður en þú ákveður nokkuð og getur fengið hana senda í tölvupósti.

Hvað ef teikning misheppnast?

Ekkert er teiknað fyrr en greiðslan berst. Áður en bókin fer í prentun skoðar manneskja hverja síðu, og sé síða óskýr eða röng teiknum við hana upp á nýtt. Sleppi eitthvað samt í gegn sendirðu okkur póst og við lögum það þér að kostnaðarlausu. Kvörtunarfresturinn er tvö ár samkvæmt lögum.

Hentar bókin líka eldri börnum eða fullorðnum?

Já. Í venjulegri litabók velurðu hverjum bókin er ætluð og teikningarnar fylgja því: stórir fletir fyrir 3–10 ára, fleiri smáatriði fyrir eldri börn og fínlegt skreytimynstur fyrir fullorðna. Þemabækurnar eru fyrir börn, og hrollvekjan er sérstaklega fyrir 8–10 ára.

Hvað ef bókin er fyrir strák á hrekkjavöku?

Þá verður hann galdrastrákur í stað nornar. Þú velur búninginn um leið og ævintýrið, líka í hrollvekjunni.

Get ég sett texta undir myndirnar?

Já, og það kostar ekkert. Undir hverri ljósmynd getur staðið það sem þú vilt, til dæmis „Fyrsti skóladagurinn“ eða „Sumarið á Snæfellsnesi“. Þannig verður bókin líka minningabók.

Hvað kostar litabókin?

Frá 3.490 kr. fyrir 10 síður og upp í 6.490 kr. fyrir 40. Þemabók kostar það sama og fæst líka sem stutt 5 síðna saga á 2.490 kr. PDF-útgáfan kostar 690 kr. til viðbótar og þú hakar við hana í pöntunarferlinu.

Til hvers þarf ég PDF-útgáfuna?

Til að geta prentað út aftur. Fari blaðsíða illa, prentarðu hana bara aftur í stað þess að panta nýja bók. Þú getur líka sent skrána til ömmu og afa. Hún kemur í tölvupósti á undan prentuðu bókinni.

Hvernig borga ég?

Með korti eða millifærslu. Kortagreiðslan fer fram á öruggri greiðslusíðu myPOS og bókin fer strax í vinnslu. Veljirðu millifærslu færðu reikningsnúmer, kennitölu og pöntunarnúmer á skjánum og í tölvupósti, og bókin fer í vinnslu um leið og greiðslan sést.

Hvað tekur langan tíma að fá bókina?

Prentaða bókin er send á 3–5 virkum dögum frá því að greiðsla berst. Hafirðu keypt PDF-útgáfuna með, kemur hún í tölvupósti talsvert fyrr, um leið og bókin hefur verið teiknuð.

Hvernig fæ ég prentuðu bókina?

Bókin er gormuð svo hún opnast alveg flöt, sem skiptir máli þegar á að lita. Hún er send til þín – í pöntunarferlinu velurðu droppstöð, heimsendingu eða að sækja til okkar.

Hvað verður um myndirnar mínar?

Þær eru eingöngu notaðar til að búa til bókina þína. Á meðan þú býrð hana til eru myndirnar bara í þínum vafra; til að teikna fer hver mynd dulkóðuð til myndvinnsluþjónustu í Bandaríkjunum sem skilar teikningunni og má ekki nota myndina í neitt annað. Myndirnar berast okkur fyrst þegar þú pantar, eru geymdar innan EES og þeim er eytt um leið og pöntunin er afgreidd – sjálfkrafa eftir 14 daga ef greiðsla berst ekki. Þær fara aldrei til Facebook eða í auglýsingar. Viltu prófa fyrst með annarri mynd? Mynd af gæludýrinu virkar alveg eins. Sjá nánar í persónuverndarstefnunni.

Hvernig virkar gjafakortið?

Þú velur stærð bókarinnar og borgar. Kortið kemur samstundis í tölvupósti með kóða, og þú getur líka fengið það prentað í umslagi. Viðtakandinn býr til bókina á litabokin.is og slær kóðann inn þegar gengið er frá pöntun – kortið greiðir bókina og sendingu á droppstöð. Velji hann stærri bók borgar hann bara mismuninn. Kortið gildir í fjögur ár. Kaupa gjafakort

Get ég búið til fleiri en eina bók?

Já, allt að sex bækur í einni pöntun. Hver bók fær sína eigin forsíðu.

Spurningar?

Sendu okkur línu á info@litabokin.is. Við svörum yfirleitt samdægurs.

← Til baka á forsíðu
  1. 1Myndir
  2. 2Upplýsingar
  3. 3Greiðsla

Búðu til litabókina þína

Veldu fjölda mynda og hladdu þeim upp. Svo velurðu eina mynd til að sjá teiknaða, þér að kostnaðarlausu. Hinar teiknum við þegar þú pantar bókina.

Veldu fjölda mynda öll verð með VSK

Hvernig bók?

Dragðu myndir hingað eða smelltu til að velja úr símanum eða tölvunni
← Á forsíðuna

Segðu okkur frá bókinni

Hvernig líst þér á bókina? Ef hún er komin í notkun væri gaman að heyra hvort einhver mynd sé í sérstöku uppáhaldi. Ein eða tvær setningar duga.

← Til baka á forsíðu

Kaupskilmálar

Síðast uppfært í nóvember 2026.

1. Um okkur

Litabókin mín (hér eftir „við“) rekur vefinn litabokin.is þar sem viðskiptavinir geta breytt eigin ljósmyndum í persónulega litabók sem við prentum, bindum inn með gormi og sendum til þín.

Seljandi: Eggert Steinar Magnússon, einstaklingsrekstur undir heitinu Litabókin mín
Kennitala: 051095-2279
Heimilisfang: Burknavellir 23, 221 Hafnarfjörður
Netfang: info@litabokin.is

2. Vörur og verð

Í boði eru prentaðar, gormaðar bækur sem opnast flatar: litabækur, þar sem verðið ræðst af fjölda mynda í bókinni, og jólaverkefnabækur, þar sem verðið ræðst af fjölda síðna. Verð eru birt á síðunni í íslenskum krónum, eru endanleg og innihalda 24% virðisaukaskatt. Kvittun með sundurliðuðum virðisaukaskatti er send í tölvupósti um leið og greiðsla hefur borist. Við áskiljum okkur rétt til að breyta verði án fyrirvara, en það hefur ekki áhrif á pantanir sem þegar hafa verið staðfestar.

PDF-útgáfan. Í pöntunarferlinu getur þú valið að fá bókina einnig senda sem stafræna PDF-skrá gegn 690 kr. viðbótargjaldi. Þetta er valkvæð viðbót við prentuðu bókina en ekki sjálfstæð vara; sé hún ekki valin fæst einungis prentaða bókin.

Trélitir. Í pöntunarferlinu getur þú bætt við einum eða fleiri kössum af trélitum frá Faber-Castell eða sambærilegum (12 litir og 3 tvílitir blýantar), 1.490 kr. hver kassi, að hámarki 5 kassar á pöntun. Kassarnir eru sendir í sama pakka og bókin og fást aðeins með bók.

Sending fer fram með Dropp. Í pöntunarferlinu velur þú annaðhvort afhendingarstað (Droppstað) eða heimsendingu þar sem hún er í boði, og sendingargjaldið ræðst af því vali samkvæmt gildandi verðskrá Dropp. Við leggjum ekkert ofan á það gjald. Gjaldið birtist áður en pöntunin er staðfest og kemur fram á kvittuninni. PDF-útgáfunni fylgir ekkert sendingargjald.

Gjafakort. Gjafakort gildir fyrir eina prentaða bók af þeirri stærð sem keypt var (litabók, þemabók eða jólaverkefnabók) ásamt sendingu á droppstöð, og gildir í fjögur ár frá kaupum. Velji viðtakandinn stærri bók eða heimsendingu greiðir hann mismuninn; velji hann minni bók fæst mismunurinn ekki endurgreiddur. PDF-útgáfa og gjafapakkar eru ekki innifalin. Kortið er afhent sem kóði í tölvupósti, og prentað í umslagi sé þess óskað.

3. Greiðsla

Þú getur valið um tvær greiðsluleiðir þegar þú sendir pöntunina. Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK), innihalda 24% virðisaukaskatt og upphæðin sem birtist í pöntunarferlinu er sú sem er innheimt.

Greiðslukort. Við tökum við Visa og Mastercard, bæði debet- og kreditkortum. Greiðslan fer fram á öruggri greiðslusíðu myPOS Europe Ltd., sem er greiðsluþjónusta okkar; kortaupplýsingar þínar berast okkur aldrei og eru hvergi geymdar hjá okkur. Hvaða upplýsingar fara til myPOS og hvað við geymum um færsluna er lýst í 4. kafla persónuverndarstefnunnar. Greiðslan er staðfest samstundis og bókin fer strax í vinnslu. Á kortayfirlitinu þínu birtist færslan sem LITABOKIN.IS.

Millifærsla. Veljir þú millifærslu færðu reikningsnúmer, kennitölu og pöntunarnúmer, bæði á skjánum og í tölvupósti; pöntunarnúmerið skal nota sem skýringu millifærslunnar. Bókin er ekki unnin fyrr en greiðslan hefur borist. Berist greiðsla ekki innan 14 daga fellur pöntunin niður og myndunum þínum er eytt.

4. Afhending

Prentaða bókin er send til þín á 3–5 virkum dögum frá því að greiðsla berst. Veljir þú að sækja bókina til okkar (Burknavöllum 23, 221 Hafnarfirði) er hún tilbúin til afhendingar innan sama tíma; við sendum þér þá tölvupóst og semjum um afhendingartíma. Dragist afhending fram úr 5 virkum dögum, látum við þig vita og þú getur þá fallið frá kaupunum og fengið endurgreitt. Hafir þú keypt PDF-útgáfuna með, er hún send á netfangið þitt um leið og bókin hefur verið útbúin, að jafnaði nokkru á undan prentuðu bókinni. Hlekkurinn á PDF-skrána virkar í 90 daga.

5. Réttur til að falla frá kaupum

Litabókin er sérsniðin að þínum eigin myndum og telst því sérpöntuð vara sem framleidd er samkvæmt fyrirmælum þínum. Samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 fellur slík vara utan hins almenna 14 daga réttar til að falla frá samningi. Sama gildir um PDF-útgáfuna, sem er stafrænt efni afhent með þínu samþykki áður en frestur til að falla frá samningi rennur út.

Þú getur hins vegar hætt við pöntun hvenær sem er áður en greiðsla þín berst okkur – þá er ekkert unnið og engin greiðsla innheimt. Eftir að greiðsla hefur borist hefst vinnslan og pöntunin verður bindandi.

Ónotuðu gjafakorti má skila innan 14 daga frá kaupum og fæst það þá endurgreitt að fullu. Sendu okkur bara póst á info@litabokin.is með pöntunarnúmerinu.

Þetta hefur engin áhrif á rétt þinn ef varan reynist gölluð eða röng; sjá 6. grein.

6. Skil, gallar og endurgreiðslur

Berist þér gölluð eða skemmd vara, eða sé villa í vinnslu af okkar hálfu, hafðu samband við info@litabokin.is og við leysum úr því – með nýrri prentun eða endurgreiðslu eftir atvikum, þér að kostnaðarlausu. Við biðjum þig að láta okkur vita eins fljótt og þú getur, en það hefur engin áhrif á lögbundinn kvörtunarfrest þinn, sem er tvö ár frá afhendingu samkvæmt lögum um neytendakaup. Þessir skilmálar skerða ekki réttindi þín samkvæmt lögum.

Teikningarnar eru útbúnar sjálfvirkt úr myndunum þínum. Í undantekningartilvikum getur ein litasíða orðið ranglega teiknuð eða óskýr. Verði litasíða í bókinni þinni ónothæf eða greinilega röng, sendu okkur póst á info@litabokin.is og við teiknum hana upp á nýtt þér að kostnaðarlausu eða endurgreiðum þér hlutfallslega fyrir þær síður sem tókust ekki. Við mælum með að þú skoðir bókina þegar þú færð hana.

Hvernig endurgreiðsla fer fram. Endurgreitt er alltaf með sömu greiðsluleið og notuð var. Hafir þú greitt með korti fer endurgreiðslan aftur inn á sama kort; hafir þú millifært leggjum við upphæðina inn á reikninginn sem greitt var af. Við biðjum þig aldrei um kortanúmerið þitt til að endurgreiða.

Hvenær. Við afgreiðum endurgreiðslubeiðnir innan 14 daga frá því að við samþykkjum þær og að jafnaði mun fyrr. Eftir að við sendum endurgreiðsluna getur tekið 3–10 virka daga í viðbót fyrir bankann eða kortaútgefandann þinn að birta hana á reikningnum – sá tími er á þeirra hendi en ekki okkar.

Skil á vörunni. Þar sem bókin er sérsniðin að þínum myndum er hún engum öðrum nothæf, og því biðjum við þig að jafnaði ekki um að senda gallaða bók til baka – mynd af gallanum í tölvupósti dugar. Óskum við eftir að fá hana senda greiðum við sendingarkostnaðinn.

7. Ábyrgð á efni

Þú berð ábyrgð á að þú hafir heimild til að nota þær myndir sem þú hleður upp. Ekki er heimilt að hlaða upp ólöglegu eða móðgandi efni.

8. Persónuvernd

Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna okkar.

9. Ef þú ert ósátt/ur

Hafðu fyrst samband við okkur á info@litabokin.is – við viljum leysa málið sjálf. Náum við ekki samkomulagi, getur þú vísað ágreiningi um kaup á vöru eða þjónustu til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa (sjá nánar á island.is). Neytendastofa hefur eftirlit með viðskiptaháttum á neytendamarkaði.

10. Lög og varnarþing

Um þessa skilmála gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

← Á forsíðuna

Ókeypis til að prenta

Jólaboðið

Leikir fyrir alla fjölskylduna sem þú prentar heima. Taktu þá með í jólaboðið eða sumarbústaðinn, eða gríptu í þá heima á rólegu kvöldi.

  • Jólabingó með myndum, svo yngstu börnin geta líka verið með
  • Hver er ég?, Leiktu það! og Teiknaðu það! með spjöldum til að klippa út
  • Jólabannorð og jólaspurningakeppni fyrir börnin og fullorðna
  • Ratleikur um húsið með átta vísbendingum

Við sendum þér hlekk á PDF-skjalið í tölvupósti. Þegar þú sækir það bætist netfangið á póstlistann okkar. Þaðan koma örfáir póstar á ári um nýja leiki, þrautir og tilboð, og þú getur afskráð þig með einum smelli. Persónuvernd

← Á forsíðuna

Gjafakort

Gefðu litabók

Viðtakandinn velur sjálfur myndirnar og hvort bókin verði venjuleg litabók, þemabók eða jólaverkefnabók. Sending á droppstöð er innifalin.

Stærð bókarinnar
Hvernig viltu fá kortið?
Á kortið

Skrifaðu eins og á að standa á kortinu: „Til Önnu og Jóa“ og „Frá ömmu og afa“.

Þínar upplýsingar
Samtals

Kortið gildir í 4 ár frá kaupum. Með kaupunum samþykkirðu kaupskilmálana.

Svona lítur kortið út. Kóðinn verður til þegar greiðslan berst.

Nýtt fyrir jólin

Verkefnabók þar sem barnið er hetjan

Settu inn eina mynd og barnið verður aðalpersónan í þrautum, sögum og litasíðum. Þú velur hvort áherslan er á stærðfræði, íslensku eða hvort tveggja og hvaða stig hentar barninu.

Frá 3.490 kr. Prentuð í lit og send heim Með gormi og liggur flöt

Tvær gerðir

Dagatalssíða með 24 gluggum sem barnið litar

Jóladagatal

24 þrautir, ein á dag frá 1. til 24. desember. Þegar barnið hefur leyst þraut dagsins litar það glugga á dagatalinu fremst í bókinni. Lausnirnar eru aftast, ætlaðar fullorðnum.

Um 30 síður · stig 1 og 2

Síða úr jólabók: hvað er klukkan?

Jólabók

8, 18 eða 28 þrautir og þú velur hvort áherslan er á stærðfræði, íslensku eða hvort tveggja. Hentar vel í skóinn, í jólapakkann eða til að dunda sér við í jólafríinu.

10, 20 eða 30 síður · stig 1, 2 og 3

Settu saman bókina

1. Bók eða dagatal?
2. Síður og áhersla

Fjöldi síðna

Áhersla

3. Stig

Veldu eftir því hvað barnið kann, ekki eftir aldri. Betra er að velja of létt en of erfitt.

4. Barnið
Í textanum stendur
Svona beygist nafnið:

Við giskum á beyginguna. Lagaðu hana ef hún er röng því að nafnið stendur svona í bókinni.

5. Mynd af barninu

Myndin er aðeins notuð til að teikna barnið. Hún er geymd í vafranum þínum þar til þú pantar og er aldrei notuð í auglýsingum.

Samtals

Sendingarkostnaður á Dropp-stöð bætist við eins og í öðrum pöntunum. Þú getur bætt fleiri bókum við áður en þú greiðir.

Í bókinni

Spurt og svarað

Hvaða stig á ég að velja?

Veldu eftir því hvað barnið les og reiknar, ekki eftir aldri. Á stigi 1 þarf barnið ekki að kunna að lesa: fullorðinn les fyrirmælin og barnið dregur til stafs, telur og litar. Á stigi 2 les barnið stutt orð sjálft. Stig 3 er fyrir börn sem lesa lengri texta og kunna margföldunartöfluna að hluta. Ef þú ert í vafa skaltu velja léttara stigið. Þraut sem barnið ræður við er skemmtilegri en þraut sem það gefst upp á.

Hvernig kemur barnið inn í bókina?

Úr einni mynd teiknum við barnið í jólafötum í nokkrum stellingum. Það veifar, leitar með stækkunargleri, heldur á pakka og fagnar. Teikningarnar birtast í þrautunum, á forsíðunni og á stórri litasíðu. Nafnið stendur í fyrirmælunum og sögunum: „Hjálpaðu Sóleyju að rata.“

Hvenær þarf ég að panta?

Bókin er tilbúin á 3–5 virkum dögum. Ef dagatalið á að vera komið 1. desember þarftu að panta í síðasta lagi 20. nóvember. Jólabókina þarf að panta í síðasta lagi 15. desember svo að hún berist fyrir jól.

Er hún prentuð í lit?

Já. Forsíðan og skrautið eru í lit en þrautirnar sjálfar eru svartar línur á hvítum pappír sem barnið skrifar og litar á. Bókin er með plastgormi og liggur því flöt á borðinu.

Hvað verður um myndina?

Myndin er aðeins notuð til að teikna barnið í bókina. Á meðan þú setur bókina saman er myndin aðeins geymd í vafranum þínum. Þegar forsíðan er teiknuð er myndin send dulkóðuð til myndvinnsluþjónustu í Bandaríkjunum sem skilar teikningunni og má ekki nota myndina í neitt annað. Við fáum myndina ekki fyrr en þú pantar og henni er eytt þegar bókin hefur verið prentuð. Hún er aldrei notuð í auglýsingum. Sjá persónuverndarstefnuna.

Get ég séð forsíðuna áður en ég panta?

Já. Settu inn mynd af barninu og ýttu á „Sjá barnið sem jólahetju“. Forsíðan er teiknuð ókeypis á um hálfri mínútu og þú sérð hana áður en þú ákveður nokkuð.

← Á forsíðuna

Gjafakortið þitt

Kóðinn er sleginn inn í „Afsláttarkóði eða gjafakort“ þegar gengið er frá pöntun.

← Til baka á forsíðu

Persónuverndarstefna

Síðast uppfært í nóvember 2026.

1. Ábyrgðaraðili

Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á litabokin.is er Litabókin mín, kennitala 051095-2279, Burknavellir 23, 221 Hafnarfjörður. Fyrirspurnir má senda á info@litabokin.is.

2. Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú býrð til litabók hleður þú upp ljósmyndum. Þegar þú pantar prentaða bók söfnum við auk þess nafni, heimilisfangi, netfangi og símanúmeri til að geta afgreitt og sent pöntunina. Símanúmerið er einungis notað ef ná þarf í þig vegna sendingarinnar sjálfrar – við notum það hvorki í markaðssetningu né gefum það þriðja aðila.

Heimild okkar til vinnslunnar er að hún sé nauðsynleg til að efna samninginn við þig um kaup á litabók (6. gr. 1. mgr. b-liður persónuverndarreglugerðarinnar). Bókhaldsgögnum er haldið eftir á grundvelli lagaskyldu.

Myndir af börnum. Eðli málsins samkvæmt eru myndirnar oft af börnum. Með því að hlaða upp mynd staðfestir þú að þú sért foreldri eða forsjáraðili barnsins, eða hafir að öðru leyti heimild til að nota myndina.

3. Myndirnar þínar

Til að útbúa teikningarnar eru myndirnar sendar á öruggan hátt til þjónustuaðila sem sér um myndvinnsluna og teikningin er send til baka. Veljir þú þemabók er einnig búin til lituð ævintýramynd út frá hverri mynd, þar sem barnið er teiknað í búningi og umhverfi þemans; sú mynd fer í bókina og er eytt með hinum myndunum. Í jólaverkefnabók er barnið teiknað sem jólahetja: forsíðumynd, myndir af barninu í þrautunum og stór litasíða. Biðjir þú um ókeypis forskoðun á forsíðunni er hún teiknuð strax og geymd í vafranum þínum; hún berst okkur fyrst þegar þú pantar og er eytt með hinum myndunum. Myndirnar eru einungis notaðar í þessu skyni.

Flutningur út fyrir EES. Myndvinnslan fer fram hjá þjónustuaðilum í Bandaríkjunum. Slíkur flutningur byggir á stöðluðum samningsákvæðum Evrópusambandsins (SCC) og eftir atvikum á EU–US Data Privacy Framework, sem eiga að tryggja að vernd upplýsinganna fylgi þeim úr landi. Þjónustuaðilarnir mega einungis vinna myndirnar fyrir okkar hönd og ekki nota þær í eigin þágu.

Aðrir vinnsluaðilar. Auk myndvinnslunnar notum við þjónustuaðila fyrir hýsingu og gagnageymslu (innan EES) og tölvupóstsendingar. Allir vinna eingöngu samkvæmt okkar fyrirmælum. Kortagreiðslur fara um greiðsluþjónustuna myPOS, sjá 4. kafla; millifærslur berast beint í banka og fara ekki um þriðja aðila.

4. Greiðslur

Þú getur greitt með greiðslukorti eða millifærslu.

Kortagreiðslur fara fram á öruggri greiðslusíðu greiðsluþjónustunnar myPOS (myPOS Europe Ltd.). Kortanúmerið slærðu inn þar, það kemur aldrei til okkar og við geymum það hvergi. Til að myPOS geti afgreitt greiðsluna sendum við þangað pöntunarnúmerið, upphæðina, nafnið þitt, netfang, heimilisfang, póstnúmer og bæjarfélag. Þegar greiðslan er staðfest fáum við frá myPOS tilvísunarnúmer færslunnar og síðustu fjóra stafi kortanúmersins, sem við geymum með pöntuninni svo hægt sé að finna færsluna og endurgreiða ef á þarf að halda. myPOS er sjálfstæður ábyrgðaraðili fyrir sína vinnslu og um hana gildir persónuverndarstefna myPOS.

Millifærslur berast beint í banka okkar og fara ekki um þriðja aðila. Við sjáum aðeins það sem stendur á bankayfirlitinu: nafn greiðanda, upphæð og skýringu.

Heimildin fyrir þessari vinnslu er að hún er nauðsynleg til að efna samninginn um kaupin (6. gr. 1. mgr. b-liður). Færslugögn eru geymd á grundvelli bókhaldslaga.

4a. Póstlistinn

Í pöntunarforminu getur þú hakað við að við megum senda þér póst þegar eitthvað nýtt kemur. Reiturinn er aldrei forhakaður og þú kaupir bókina nákvæmlega eins hvort sem þú hakar við eða ekki.

Á síðunni Leikir getur þú skráð netfangið og fengið ókeypis leikjapakka til að prenta. Við sendum þér hlekk á pakkann í tölvupósti, og þegar þú smellir á hlekkinn bætist netfangið á póstlistann. Smellurinn staðfestir að þú eigir netfangið, svo enginn getur skráð netfang annars manns á listann.

Heimild okkar til að senda þér slíkan póst er samþykki þitt (6. gr. 1. mgr. a-liður). Við geymum netfangið þitt og hvenær samþykkið var gefið. Þú getur dregið samþykkið til baka hvenær sem er með því að svara einhverjum póstinum eða senda okkur línu á info@litabokin.is, og þá ferðu af listanum. Netfangið fer ekki til þriðja aðila og er ekki selt.

4b. Ókeypis teikning send í tölvupósti

Þegar þú biður okkur um að senda þér ókeypis teikningu notum við netfangið þitt til þess eins að senda hana. Heimild okkar fyrir þeirri sendingu er beiðni þín sjálf (6. gr. 1. mgr. b-liður), enda er hún það sem þú baðst um.

Í sama skrefi getur þú hakað sérstaklega við að við megum senda þér tvo pósta til viðbótar með hugmyndum að bók. Reiturinn er aldrei forhakaður, þú færð teikninguna óháð því hvort þú hakar við, og póstarnir verða aldrei fleiri en tveir. Heimildin fyrir þeim er samþykki þitt (6. gr. 1. mgr. a-liður). Í hverjum pósti er hlekkur sem afskráir þig samstundis, og þú getur líka sent okkur línu á info@litabokin.is.

Við geymum netfangið, dagsetninguna og hvort samþykki var gefið. Teikningin sjálf og myndin sem hún var gerð úr eru ekki geymdar hjá okkur við þessa sendingu. Netfangið fer ekki til þriðja aðila og er ekki selt.

5. Vefkökur og auglýsingamælingar

Nauðsynleg tæknileg gögn kunna að vera geymd tímabundið í vafranum þínum til að síðan virki (t.d. pöntun í vinnslu og valið þitt um vefkökur). Þau eru ekki notuð til að rekja þig.

Meta Pixel. Til að mæla hvort auglýsingar okkar á Facebook og Instagram skila sér notum við Meta Pixel og tengda þjónustu Meta (Conversions API) – en aðeins ef þú samþykkir það í borðanum sem birtist við fyrstu heimsókn. Hafnir þú er ekkert sent til Meta, hvorki úr vafranum þínum né frá okkar þjóni, og þú getur keypt bókina nákvæmlega eins.

Samþykkir þú, sendum við Meta upplýsingar um hvaða síður þú skoðar og, ef þú pantar, upphæð pöntunarinnar. Til að Meta geti tengt kaupin við auglýsinguna sem þú sást fylgja auk þess netfang, símanúmer, póstnúmer og bæjarfélag – öll dulkóðuð með einstefnu-hash (SHA-256) áður en þau fara frá okkur, svo Meta fær aldrei gildin sjálf í læsilegu formi – ásamt IP-tölu og gerð vafra. Meta setur þá vefkökur (_fbp og _fbc) í vafrann þinn. Myndirnar þínar fara aldrei til Meta.

Heimildin fyrir þessari vinnslu er samþykki þitt (6. gr. 1. mgr. a-liður). Valið gildir í sex mánuði, þá spyrjum við aftur. Þú getur breytt því hvenær sem er með því að smella á hér eða neðst á síðunni. Meta er sjálfstæður ábyrgðaraðili fyrir sína vinnslu; um hana gildir persónuverndarstefna Meta.

6. Geymslutími

Pöntunarupplýsingar (nafn, heimilisfang, netfang og upphæð) eru geymdar eins lengi og þörf krefur vegna bókhalds og laga.

Fullbúnar bækur, sem innihalda myndirnar þínar, eru geymdar tímabundið svo hægt sé að prenta þær og, ef þú keyptir PDF-útgáfuna, svo þú getir sótt hana aftur:

Þú getur hvenær sem er beðið um að bókinni þinni og pöntunarupplýsingum verði eytt fyrr með því að senda póst á info@litabokin.is.

7. Réttindi þín

Þú átt rétt á að:

Hafðu samband við info@litabokin.is til að nýta þennan rétt; við svörum eins fljótt og hægt er og í síðasta lagi innan mánaðar. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík (personuvernd.is).

8. Hafðu samband

Spurningar um persónuvernd má senda á info@litabokin.is.

← Til baka í myndirnar
  1. 1Myndir
  2. 2Upplýsingar
  3. 3Greiðsla
Búa til litabókókeypis sýnishorn

Sölusíðan

Sæki pantanir…

Verkfæri
0
bíða þín
0
ógreiddar
0 kr.
sala í mánuðinum
0
pantanir alls